|
|
21.08.2006 20:26:32 / annasteffa
Jæja Girls, ættum við kannski að segja skilið við
Kærleiksbirnina???
Bara smá svona uppástunga eða gefa allt í botn ykkar að
ákveða
Annie Stefaníee
»
05.07.2006 20:24:24 / bangsi
Ég legg ekki í annan brandara,
þar sem enginn skildi þann síðasta og fólk heimtaði útskýringar en
í staðinn ætla ég bara aðeins að rifja upp stuttlega hversu vel ég
skemmti mér á landsmóti hestamanna...
Ég lagði semsagt í hann á fimmtudagseftirmiðdagi með þeim gömlu,
skellti mér síðan á ball með Geirmundi Valtýrsyni um kvöldið og
hitt fullt af fólki! Eftir ballið fór ég að elta mina kolrugluðu
frænku Örnu og villtumst við dáldið mikið og vorum óvart komin í
akkúrat hinn endann frá tjaldinu okkar, ég er að spá í að hafa hana
í bandi næst. Föstudagskvöldið var Inga svo góð að koma með mér í
sjúkrakofann og eyddum við megninu af kvöldinu þar, því ég var með
einhverja augnsýkingu og þegar ég loksins slapp þaðan var ég með
bómul yfir auganu og heftiplástur um hálft andlitið í kring, ekki
gott það! Sólgleraugun dugðu ekki einu sinni til að fela þetta..
Svo á laugardagskvöldið gerðum við Dóra smá skandal, þegar við
vorum að fara í brekkuna tróðum við okkur óvart í miðjan
karlakórinn sem var að labba niður brekkuna í hóp, búið að kynna
hann inn og myndavélin beindi að þeim og allt! og við Dóra bara
eins og algjörir apar í miðjum hópnum...gaman að segja frá því.. 
svo voru paparnir að spila seinna um kvöldið og það var geggjað
gaman!
Einu sinni hitti ég líka eina kjellu á klósettinu sem sagðist hafa
fundið upp klósettpappírinn, en ekki trúði ég því og trúi ekki enn…
sumt fólk! Svo fór ég heim..
Þetta er semsagt allt það sem ég man af landsmótinu, ókey kanski
ekki alveg allt en það er líka miðvikudagur og ekki hægt að ætlast
til að ég muni allt!
En hey verðum við ekki að fara að halda stelpuhitting eða
hvað??
Hugrún..
»
03.07.2006 12:01:56 / annasteffa
Ég vil óska ferðakærleiksbjörnunum sem
skelltu sér norður á landsmót á
vindheimamelum hjartanlega velkomna heim og
óska ég eftir skemmtilegu og
fróðlegu bloggi af þeirri ferð ....
-Annie pannie-
»
18.06.2006 22:15:57 / bangsi
Einu sinni var gömul kona, sem var búin að liggja í dái í
öndunarvél inná sjúkrahúsi í mörg ár, án þess að sýna nein
viðbrögð. Svo einn daginn var hjúkrunarkonan að þrífa konunni um
kynfærin og þá kipptist hún eitthvað til og brosti, þannig að
hjúkrunarkonan, í samráði við lækninn, bað eiginmann konunnar að
gera munnmök við konuna í von um að hún myndi lifna við.. Maðurinn
fór inn og kom svo eftir 10 mín út aftur alveg í sjokki, og
læknirinn spurði hvort þetta hefði gengið eitthvað, þá sagði
maðurinn: Nei hún eiginlega kafnaði bara!
Þessi var dáldið ljótur...
Ætla ekki allir á landsmót?!?
Hugrún...
»
25.05.2006 13:41:24 / annasteffa
Ákvað að henda inn einu hundleiðinlegu og mjög ómerkilegu
bloggi svona í tilefni dagsins!! 
Það er fámennt hér á Fróni, þar sem okkar ástkæru vinkonur þær
Hugrún, Kristín og Ester eru farnar af landinu og koma ekki aftur
fyrr en 2. júní 
En
við sem eftir þeim bíðum sitjum sko ekki aðgerðarlausar hér
heima...ónei!!
Við Inga skelltum okkur á bráð skemmtilegt tveggja daga
námskeið í höfuðborginni, sem var haldið á vegum vinnunnar okkar í
sumar að Laugarlandi í holtum J
vívíví
Freyja vinnur og vinnur eins og sannur herforingi og stjórnar
Dóru, með verkvitið, af öllum lífsins og sálarkröftum
Þar sem baðið okkar varð fyrir því mikla óhappi að brotna núna
um daginn, syndi ég eins og STÓR sardína í gulu fiskikari sem er
staðsett í innkeyrslunni okkar þessa dagana....hlakka rosa til
þegar það verður komið í lagJ
Auglýsi hér með
baðkari, lítið notað og vel með farið helst ekki úr
plastiJ
áhuga samir endilega hafið samband!!
.....þar sem Ester og Kristín tóku Norrænu.....þá enda ég
þetta stutta og leiðinlega blogg allra tíma á orðunum.........,,
þær sigldu út um höfin blá ’’.....samt ekki í 17
árJ
* Anna Sardína
*
»
17.05.2006 22:14:09 / bangsi
»
07.05.2006 22:41:20 / ingaberg
2 dagar eftir og 2 próf eftir.. það er það
eina sem heldur mér gangandi þessa dagana...! ég er komin með
svo mikla skólaleiði að ég bara get ekki beðið eftir því að
komast í sumarfrí ég finn á mér að þetta
verður eitt þeirra allra bestu og svona til að stytta ykkur
stundir í próflestri ætla ég að telja upp nokkra hluti sem mér
hlakkar óskaplega til right now (í stað þess að vera að
læra fyrir próf) 
-
Búin í prófum 9. maí og get málað allan heiminn
fyrir elsku mömmu 
-
Lokaball 12. maí og stelpugame og grill hjá mér
fyrir það!  (nánar auglýst síðar)
-
Bústaður 15-17 maí með skemmtilegustu stelpum í
heiminum
-
Eurovision og silvíu nótt partý útum allt! oh
jeee..skiluru?
-
Hlakka bara mikið til að fara að vinna bæði á
laugalandi og í pulsuvagninum 
-
Landsmót hestamanna, fyrstu helgina í júlí -
eitt stórt djamm í skagafirði
-
Þjóðhátíð í Vestmanneyjum, hvað er betra?

-
heill hellingur af útileigum og alls kyns
skemmtilegheitum í allt sumar! 
svo er að sjálfsögðu margt margt fleira sem er á
dagskrá en þetta er svona það sem ég er búnað ákveða og hlakka mest
til... það er svoo gaman að vera til! 
Hef svosum ekkert meira að segja frá í bili...
ætla að glugga aðeins í stærðfræðibækurnar, þær verða minn
kúrfélagi í nótt! 
Kv. Inga í sumarskapi.. 
»
04.05.2006 14:33:26 / annasteffa
Hannes Hafsteins einn af þeim marg þekktu Raunsæisskáldmönnum
orti margar meitlaðar stökur sem lifa með þjóðinni......
Hér er ein sem á svo vel við Kærleiksbirnina, Tign dömur og
auðvitað miklu fleiri bara alla!´
Lífið er dýrt,
dauðinn þess
borgun.
Drekkum í kveld,
iðrumst á
morgun.
já
þetta er svo sannarlega vel ort hjá Hannesi karlinum
já þetta gat hann
Anna
Stefanía
»
28.04.2006 01:14:49 / Freyja
HVAÐ ERTU BÚIN AÐ GERA HUGRÚN?!?!?!
Hér kom ég heim í mesta sakleysi mínu, las bloggið þitt
og ákvað að slá til með þetta slá í bringuna og núna er ég með
TYPPI!!!!
Hvað get ég gert í því?!?! hvernig Aftyppar maður
sig!
Nei kjáni afhverju ætti þetta að virka þannig? svo er maður
ekkert með svona górillugang 
En allavega var ég að koma heim og er ekkert svooo sybbin svo
langaði bara að gera eitthvað skemmtilegt og hvað er
skemmtilegra en að blogga ég bara spyr...
Já Dóra þetta er hneyksli með tenglana! ég fer í það
bráðum... um leið og ég er nennsamari því ég kann eila ekkert nema
skrifa dagbók 
Langar að enda þetta á einum stuttum brandara: Einu sinni voru
tvær blöðrur að leika sér í loftinu, þá sagði önnur :"Hey passaðu
þig á kaktusnum þarna!" og þá sagði hin: "Hvaða
kaktusSsSsSsSs....." hahaha minn uppáhalds!
Og svo ein mynd af Dóru. Einmitt
þegar ég tók hana var hún að sega AA... var sko að sega:
Tign.tk er að tAApAA!! 
með ást og alúð ykkar Freyja 
»
27.04.2006 17:45:14 / bangsi
Ég ákvað bara að leggja mitt af mörkum í þessari ágætu bloggkeppni
og koma með eina bloggfærslu...
Ég er í mestu makindum að reyna að senda Önnu öll
uppeldisfræðiverkefnin, því hún gerir ekkert annað en að sofa í
tímum og lætur mig bara læra fyrir sig.. Hehe nei nú lýg ég
Eeen stelpur.. hvað ætliði eiginlega að gera í kvöld?? ..Mig langar
svo að gera eitthvað sniðugt, þið megið endilega koma með ferskar
hugmyndir, ágætu lesendur
Og svo bara ein pæling í lokin... Breytist maður í karlmann ef að
maður lemur nógu mikið á bringuna sína??
»
26.04.2006 10:44:21 / Freyja
VIÐ töpum sko ekki!! Halló við erum 5 og þær 2 svo
eru þær líka svo lélegur 
Annars voru þær ekki lélegar í gær þegar við fórum og
rúlluðum upp timburhólaskóg með lambaframpartinum mjög miklir
grillsnillingar þar á ferð takk fyrir góðann lautartúr

Annars fyrst að þið eruð allar í ljóðunum langar mig að
semja eitt skemmtilegt líka 
Útí heita sólin
skín
sælir syngja fuglar
ekkert gerir anna mín
annað en að rugla
Ekki alveg besta ljóð í heimi ég veit en bara
samið ótrúlega hratt og er ekkert mikið fyrir sona ljóðareglur
Annars langar mig að minna á það hvað ég er heppin með vinnu í
sumar, því að ég fæ Dóru með mér nanananana kannski við verðum
orðnar harðar lebbur í haust hver veit 
En ég veit ekki hvenær krýndir verða sigurvegarar í
þessari keppni, en allavega er ég ekki tilbúin til að játa mig
sigraða strax! tökum okkur á í blogginu! allavega 1 blogg á dag því
mottó okkar Kærleiksbjarna er nú EITT BLOGG Á DAG KEMUR
SKAPINU Í LAG! Ekki satt? 
Svo eru það próf á næstunni og svo Sumarbústaður!! hipp
hipp húrra!! hann er reyndar bara 7,7 fermetrar og bara barnarúm
útum allt en við látum það nú ekki á okkur fá 
 Svo ein mynd þar sem dóra er að benda
á Kristínu og Esteri og sega: nanana þið eruð að tapa! en
illkvitnisleg mynd af þér dóra!
»
24.04.2006 15:33:46 / bangsi
Jæja....mikill keppnisandi svífur yfir okkur
Kærleiksbjörnunum, þar sem mikil spenna ríkir á milli okkar og
TIGN.is, við viljum sko alls ekki tapa þessari æsi spennandi
keppni .....vandin er bara sá að við Hugga Tugga og Anna
Panna, vitum ekki hvað við eigum að blogga um ....hugsi hugsi
hugsi .....Vorum í þessari mund að ljúka þræl erfiðu
uppeldisfræðiprófi .....
Eeen...þar sem sumarið er senn byrjað og skólinn að taka enda
ákváðum við nördarnir að skella inn einu góðu ljóði sem við fundum
á ljod.is hehehe
Sólskin
|
Sólskins fagur sumardagur
sinnið hressir, vermir blóð,
léttir geð og lífgar gleði,
lyftir huga og kveikir móð,
er skýja drungi og skúra þungi
skugga slær á sálu mín
vonin bjarta vor í hjarta
vekur, innra sólin
skín.
|
|
Grímur Thomsen
1820-1896 |
|
Anna Panna og Hugga Pugga |
»
20.04.2006 20:51:17 / ingaberg
.... og takk fyrir veturinn 
Ég hef nú ekkert ótrúlega mikið að segja en ákvað
að leggja mitt af mörkum í þessari hörðu bloggkeppni! Staðan er
jöfn eins og er en með mínu bloggi tryggi ég okkur forystu! 
Páskafríið var geggjað og nú tekur alvaran við -
og í raun ennþá meiri alvara sökum slaks árangur í lærdómi í
páskafríinu, hann fékk að víkja fyrir djammi og öðru miklu
skemmtilegra. Sumarið byrjaði í frekar miklum
rólegheitum. Svona var dagurinn hjá mér í stórum dráttum:
-
Svaf eins og ungabarn fram að hádegi eftir
skemmtilega hestasýningu í gærkvöldi sem varð til þess að ég þurfti
hálfpartinn að bera hann föður minn á öðrum fætinum inn, don´t know
why 
-
Eyddi þónokkrum hluta af deginum að reyna að læra
um það hvernig ég á að ala upp börnin mín í nánustu
framtíð
-
Beilaði á Freyju á tónleikum hjá kórnum - afþví
ég ætlaði að læra!
-
Gerði smávegis af því og fór svo að
finna til myndir úr tölvunni minni til að framkalla, þvílíkt
óhemjumagn sem ég á af myndum í tölvunni minni, fjúff! er ekki
búnað komast í gengum helminginn af þeim...
-
Eldaði þennan fína kvöldmat handa einhverjum
skítugum vinnukörlum - þeir þökkuðu fyrir matinn með verstu táfílu
sem ég hef á ævi minni fundið - ég flúði inn á skrifstofu allan
tímann sem þeir borðuðu og sá svo til þess að það yrði loftað út í
allt kvöld - jiminn eini, það eru aldeilis þakkirnar!
-
Kvöldmaturinn var einmitt sökin á því að ég
beilaði aftur á stelpunum að fara í bingó... Beiler ÉG 
-
Fann fyrir óstjórnlegri þörf minni að fara út að
skokka eftir matinn, sennilega sökum alls poppátsins fyrr um daginn
(sem er einmitt mitt allra mesta uppáhald, ef ég fengi að ráða þá
væri popp í allar máltíðir, einhvertíman ætla ég að athuga hvort
maður getur lifað á poppi einu saman) - allavega fór ég út og
skokkaði og mér blöskraði eiginlega þegar ég komst að því hvað ég
er í lélegu formi  ég sem var kominn í svo gott form hérna í
vetur eftir reglulegu ferðirnar mínar í styrk! það var samt
fullkomið útiveður - logn og frekar hlýtt og ég held að það sé fátt
betra en að fara út að skokka smá í svona veðri með tónlistina í
botni í eyrunum. Stundum er gott að búa í sveit! 
-
Nú er ég svo að reyna að herða mig upp í það að
fara að kynna mér aðeins betur hvernig þetta á að gera með börnin
þegar að þeim kemur!
En nóg í bili frá mér - kvet ykkur stelpur til að
blogga! við megum sko EKKI tapa!
kv. Inga sem er alveg að verða tilbúin að verða
mamma! 
»
18.04.2006 17:31:47 / Freyja
Jæja þá er páskafríið á enda og alvara lífsins tekin við aftur!
en mikið glatað! Langar bara að vera alltaf í fríi!get ekki
beðið eftir sumrinu og öllum ævintýrunum sem það muni bera í skauti
sér svo líka verður svo gaman í vinnunni hjá mér og dóru stóru

Ég get ekki hugsað mér að fara aftur í skolann! og byrja í
prófum og eitthvað svona ves! nenni svo innilega ekki að fara að
læra fyrir prófin! langar samt ekki að falla verð að taka mig á!
sit einmitt nuna í ruminu hennar kristínar og á að vera að
læra...
Annars nenni eg ekki að væla meira yfir þessu.. þetta er búið að
vera hið besta páskafrí! Mikið stuð mikið gaman ball og
sona EN ÝKT!!!
En já hef fátt að sega bara núna fer þessi síða að rúlla aftur
þegar skolinn kemur í gang! Enda ætlum við að verða frægari en
a-lidid ekki satt?! újé beibí! og vinna Tign.tk í bloggkeppni
hehe... síjú 
»
06.04.2006 23:39:59 / Freyja
Jæja þá er það BLOGGIÐ sem að ALLIR eru búnir að bíða eftir!!!
Þetta er ótrúlega glatað ég veit ég veit en bara búið að vera svooo
mikið að stússast og enginn tími fyrir þetta leiðinlega net... hver
nennir að hanga á svona rugli einsog netinu þegar það er svoo margt
miklu betra sem þið gætuð verið að gera! glatað lið  En takk samt
fyrir að kíkja á síðuna okkar  gaman að það sé ekkiöllum sama...
fékk smá samviskubit þegar ég fór að lesa commmentin en þið eruð að
láta mig rífa mig frá ótrúlega spennandi íþróttaverkefni  sem ég
get ekki gert  En eru ekki allir örugglega búnria ð koma á
leikritið því seinasta syningin er um helgina! *psst steinar og
sævar og alex* þremenningin sjálf ekki búin að mæta! glatað! Svo er
það páskafrí jeyjj! páskaegg jeyjj!! en komið gott´í bili! kyss og
knús !! taki til sín sem eiga  segir maður það ekki! góða nótt 
og ef ég fæ ekki 10 fyrir íþr verkefnið mitt.. þá kenni ég ykkur um
 over and out hehe
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|